Örkin í Fljótshlíð


Örkin er sameiginleg eign Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi.
Um er að ræða 2000 fm húsnæði sem er staðsett í sveitakyrðinni í Fljótshlíð.
 Frábær aðstaða er til samkomuhalds. 

Tveir rúmgóðir salir er í húsinu ásamt alrými sem hýsir meðal annars sjoppu - hamborgarabúllu - bókaverlsun - útvarpsstöð og sjónvarpsver,
á meðan mót og ráðstefnur eru í gangi. 

Minni salurinn sem er um 600 fm er einangraður og upphitaður þannig að hægt er að halda minni ráðstefnur yfir vetrartíman.  í 600 fm kjallara er verkstæði, geymslurými og lager og bíósalur, sem og nokkur svefnrými. Hægt er að fá gistingu fyrir 120 manns í skálanum.
Einnig eru tjaldsvæði með aðgengi að salerni og þvottaaðstöðu sem notuð
eru á sumarmótum fyrir  5 - 600 manns.
Tölvert er af rafmagnstengjum fyrir húsbíla ásamt því að auðvelt er að nálgast vatn


Miðrými og aðalsamkomusalurinn eru enn ekki fullfrágengin en langt komin og hafa velunnarar starfsins tekið að sér fjársöfnun til þess að klára húsnæðið
svo hægt sé að nýta húsnæðið allan ársins hring. 

Þú getur tekið þátt með að leggja því lið með því að taka fermet í fóstur.  

"Taktu fermeter í fóstur með 50.000 kr. framlagi !"
Ef þú vilt vera með þá eru hér upplýsingar um það
hvernig þú getur  lagt inn þitt framlag
0182 - 26 - 918   kt 520384 - 0499
Drottinn blessi þig !
Flettingar í dag: 153
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 137
Gestir í gær: 77
Samtals flettingar: 201080
Samtals gestir: 89073
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 18:23:07
Hvítasunnukirkjan á Íslandi, Hátúni 2, 105 Reykjavík, Iceland
sími: 535 4700, email: filadelfia@filadelfia.is